Tónlistarkonan Hafdís Huld hefur sent frá sér nýtt lag sem nefnist „Ár eftir ár“.
Líkt og fram kemur í fréttatilkynningu sem Hafdís Huld sendi frá sér er þetta fyrsta lagið sem söngkonan tekur upp á íslensku, ef frá eru talin þau lög sem er að finna á barnaplötunum hennar tveimur.
Lagið er þegar farið að heyrast í útvarpi, en Hafdís vinnur um þessar mundir að gerð nýrrar plötu sem áætlað er að verði tilbúin á næsta ári.
Hafdís er stödd í London, þar sem tónleikaferðalag hennar mun hefjast á fimmtudaginn kemur.
Hlýða má á lagið hér að neðan.