Leikkonan Ariel Winter, sem gerði garðinn frægan fyrir hlutverk sitt í þáttunum Modern Family, hefur gefið sterklega til kynna að hún og kærastinn hennar hafi slitið sambandi sínu.
Winter og Laurent Claude Gaudette hafa verið par í rúm tvö ár, en líkt og fram kemur í umfjöllun Us Weekly nú virðist vera sem upp úr hafi slitnað.
Skötuhjúin hafa hætt að fylgja hvort öðru á samfélagsmiðlum, auk þess sem leikkonan mætti ein síns liðs á lokaball skólans hennar í síðasta mánuði.
Winter deildi mynd af lokaballinu, en við hana skrifaði hún textabrot úr laginu „Sorry“ sem finna má á Lemonade nýjustu plötu Beyoncé Knowles.
Middle fingers up Put them hands high Wave it in his face Tell him boy bye 👋🏽
A photo posted by Ariel Winter (@arielwinter) on May 24, 2016 at 12:04am PDT