Fregnir herma að Liam Payne, kærasti söngkonunnar Cheryl Fernandez-Versini, hafi á dögunum eytt dágóðri summu í glæsilegan demantshring.
Í kjölfarið fóru fjölmiðlar því að velta fyrir sér hvort Payne hygðist biðja um hönd kærustunnar, sem þó á einnig afmæli í næstu viku.
Skartgripurinn er ekkert slor, en Payne hannaði hringinn sjálfur. Söngvarinn er sagður hafa sótt innblástur í húðflúr söngkonunnar, en blómlegar rósir þekja allan bakhluta hennar.
Samkvæmt frétt The Sun er svartur demantur í aðalhlutverki, og er hann umkringdur rúbínum.
Skötuhjúin hafa verið að slá sér upp í nokkra mánuði en þau fóru að stinga saman nefjum eftir að söngkonan sagði skilið við eiginmann sinn, Jean-Bernard Fernandez-Versini, á síðasta ári.
Frétt mbl.is: Tengdafjölskyldan hæstánægð með Cheryl