Khloé Kardashian sagði í viðtali að hún hefði ákveðið að taka heilsuna föstum tökum, ekki til að líta vel út, heldur einfaldlega til að öðlast betri andlega líðan líkt og fram kemur í frétt Mirror.
„Fyrir mitt leyti þá held ég að skjaldbakan vinni alltaf kapphlaupið. Þyngdartapið mitt var langt ferli. Ég ákvað ekki að missa 10 kíló á 10 dögum. Ákvörðunin var tilfinningaþrungnari en það.“
„Þegar ég tók heilsu mína föstum tökum fór mér að líða betur, andlega og líkamlega,“ sagði Kardashian.
„Ég held að maður þurfi ekki að sýna allt til að vera kynþokkafullur. Mér finnast bikiní til að mynda frábær, en mér líður ekki vel í þeim. Ég er sundbolastelpa.“
Kardashian hefur þurft að þola mikið umtal vegna holdafars síns, en á dögunum greindi hún frá því að hún hefði þótt of feit fyrir tískubransann.
Frétt mbl.is: Þótti of feit fyrir tískuiðnaðinn