Metnaðarfullur bókasafnsgestur tekst á loft með bókasafni Norræna hússins og fer langt út í geim í nýju myndbandi hljómsveitarinnar One week wonder við lagið „Mars“ sem kom út í gær. Sveitin er tríó skipað þeim Magnúsi Benedikti Sigurðssyni, Árna Guðjónssyni og Helga Kristjánssyni og notuðu þeir að sögn eingöngu upptökutæki sem eru meira en 20 ára gömul við upptökurnar.
Búningurinn sem sést í myndbandinu er gamall kínverskur háloftabúningur og var hann keyptur til landsins frá kínverska hernum en það var Baldvin Albertsson sem leikstýrði myndbandinu sem var framleitt af Tjarnargötunni.
Von er á frekari útgáfu í ágúst.