Judy Dench fékk sér húðflúr

Judi Dench er ung í anda, en á dögunum fékk …
Judi Dench er ung í anda, en á dögunum fékk hún sér sitt fyrsta húðflúr. AFP

Stórleikkonan Judy Dench greindi frá því á dögunum að hún hefði fengið sér sitt fyrsta húðflúr, 81 árs að aldri.

Líkt og fram kemur í frétt Mirror var það dóttir Dench, Finty, sem gaf leikkonunni flúrið í afmælisgjöf. Flúrið er á úlnlið leikkonunnar og sækir innblástur í kjörorð Dench, en þar stendur „Carpe Diem“, eða gríptu daginn.

„Þetta eru einkunnaroð mín, gríptu daginn. Finty gaf mér það í 81 árs afmælisgjöf. Hún er stórgóð í að koma manni á óvart.“

Á síðasta ári greindi leikkonan frá því að hún væri spennt fyrir hugmyndinni að fá sér húðflúr, en þá var hún að velta fyrir sér að fá sér tákn sem merkir ást.

Frétt mbl.is: Langar í húðflúr í tilefni 80 ára afmælis

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú finnur til einmanaleika og einangrunar. Biddu um aðstoð, það er engin skömm að því. Börnin krefjast athygli þinnar sem aldrei fyrr.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Harry Whittaker og Lucinda Riley
2
Sólveig Pálsdóttir
3
Moa Herngren
4
Ragnar Jónasson
5
Jojo Moyes
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú finnur til einmanaleika og einangrunar. Biddu um aðstoð, það er engin skömm að því. Börnin krefjast athygli þinnar sem aldrei fyrr.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Harry Whittaker og Lucinda Riley
2
Sólveig Pálsdóttir
3
Moa Herngren
4
Ragnar Jónasson
5
Jojo Moyes