Samband skötuhjúanna Rob Kardashian og Blac Chyna hefur mikið verið á milli tannanna á fólki undanfarið, enda fjölskylda föðurins mikið gefin fyrir að láta ljós sitt skína í fjölmiðlum.
Skötuhjúin eiga von á litlum erfingja í október, en samkvæmt frétt Us Weekly eiga þau von á lítilli stúlku.
Samkvæmt heimildamanni blaðsins er parið í óða önn að undirbúa komu dótturinnar, en að sjálfsögðu hafa upptökuvélar verið skammt undan enda verið að taka upp raunveruleikaþátt. Þátturinn verður síðan sýndur á sjónvarpsstöðinni E!, líkt og þættirnir Keeping up with the Kardashians.