Leikkonan Joanna Lumley, sem líklega er þekktust fyrir hlutverk sitt sem Patsy í gamanþáttunum Absolutely Fabulous, greindi frá því á dögunum að hún hefði notið þess að kyssa hjartaknúsarann Leonardo DiCaprio.
Leikkonan var gestur í spjallþættinum Watch What Happens Live þegar hún var beðin að lýsa því í þremur orðum hvernig hefði verið að kyssa leikarann, en þau léku hvort á móti öðru í kvikmyndinni Wolf of Wall Street.
„Piparmyntukeimur, krúttlegt og stórkostlegt,“ sagði leikkonan í gamansömum tón, en greinilegt er að hún kann vel að meta kauða.
Ný mynd um ævintýri vinkvennanna Patsy og Edinu verður frumsýnd vestanhafs í dag.
Frétt Daily Mail