Samband Tom Hiddleston og Taylor Swift hefur mikið verið á milli tannanna á fólki undanfarið. Leikarinn lætur sér þó fátt um finnast og segist vera sama hvaða skoðun fólk hefur á ráðahagnum.
Líkt og fram kemur í frétt Mirror var leikarinn staddur á Comic Con-hátíðinni á dögunum, þar sem hann var að kynna nýjustu mynd sína Kong: Skull Island. Forvitnir gestir notuðu þó tækifærið og spurðu kappann út í samband hans við söngkonuna og fjölmiðlafárið í kringum skötuhjúin.
„Þú verður að hafa trú á hverju því sem þú tekur þér fyrir hendur, en svo lengi sem þú gerir það skiptir álit annarra engu máli.“
„Þegar maður er opinber persóna hefur fólk skoðun á öllu sem maður gerir, en svo lengi sem maður veit af hverju maður gerir hlutina, hefur skuldbundið sig einhverju og gerir það af heilindum ætti allt að vera í lagi.“