Söngkonan Ariana Grande hefur sagt skilið við kærasta sinn, dansarann Ricky Alvarez, en þau hafa átt í sambandi síðasta árið.
Skötuhjúin voru fyrst orðuð við hvort annað síðasta sumar, líkt og fram kemur í frétt ET, en talsmaður miðilsins hefur staðfest að þau hafi ákveðið að slíta sambandi sínu.
Grande virðist hafa gefið vísbendingar um sambandsslitin á samfélagsmiðlum, því hún eyddi öllum myndum af Alvarez á Instagram-reikningi sínum. Þá lýsti hún því einnig yfir á Twitter að hún væri frelsinu fegin.
„Breytingar. Er frjáls og hamingjusöm,“ sagði söngkonan í færslu, sem hún eyddi þó skömmu síðar.