Ungstirnið Justin Bieber, sem hingað til hefur helst verið þekktur fyrir fagran söng, er sagður vera að velta því fyrir sér að færa út kvíarnar.
Bieber er sagður vera að hugleiða að taka að sér hlutverk í kvikmyndinni Uber Girl, að því gefnu að miklar breytingar verði gerðar á handritinu líkt og fram kemur í frétt Page Six.
„Hann vill ekki taka að sér hlutverkið nema að kynlífssena með honum og karlkyns dansara verði skrifuð út úr lokahandritinu,“ sagði Pete O‘Neill, annar handritshöfundur kvikmyndarinnar.
Bieber hefur áður tekið að sér nokkur hlutverk í sjónvarpsþáttum og kvikmyndum, auk þess að leika reglulega í eigin tónlistarmyndböndum. Þá lét hann fanga í sjónvarpsþáttunum CSI árið 2010, auk þess sem hann lék í gamanmyndinni Zoolander 2.