Rokkarinn Ozzy Osbourne greindi frá því á dögunum að hann hafi engan áhuga á því að gerast geimfari.
Osbourne heimsótti Nasa, og komst að því að hvorki væri leyfilegt að njóta kynlífs, né drekka áfengi í geimnum. Og það hugnaðist honum ekki, líkt og fram kemur í frétt Daily Mail.
„Hversu leiðinlegur staður. Hvað er þá eiginlega eftir?“ sagði söngvarinn í spjallþætti Jimmy Kimmel.
Hjónaband Osbourne hefur mikið verið á milli tannanna á fólki undanfarið, en fyrr á árinu komst upp að hann hefði haldið við hárgreiðsludömu sína.
Frétt mbl.is: Gerir hvað sem er til að bjarga hjónabandinu