Hilary Duff er sögð hafa aukið öryggisgæslu við heimili sitt. Að sögn fékk leikkonan ábendingu frá lögreglunni, en óður aðdáandi er sagður vera að leita að heimili hennar.
Maðurinn leigði lúxusbifreið og ók um götur Beverly Hills til þess að hafa upp á Duff, en hann sagði bílstjóra bifreiðarinnar að hann hygðist biðja um hönd leikkonunnar.
Bílstjórinn gerði lögreglu viðvart, enda þótti honum háttalag mannsins einkennilegt.
Samkvæmt frétt Daily Mail veit teymi á vegum Duff hver maðurinn er, enda hefur hann áreitt leikkonuna áður. Hún er þó hvorki sögð hafa fyllt út lögregluskýrslu vegna málsins, né sótt um nálgunarbann á hendur manninum.