Leikkonan Kristin Stewart opnaði sig um einkalíf sitt á dögunum og greindi frá því að hún væri yfir sig ástfangin af kærustu sinni Aliciu Cargile.
Stewart og Cargile voru fyrst orðaðar hvor við aðra á síðasta ári, en sú síðarnefnda starfaði um tíma sem aðstoðarkona leikkonunnar.
„Ég er bara reglulega ástfangin af kærustunni minni. Við höfum hætt nokkrum sinnum saman og byrjað aftur saman. Í þetta sinn finnst mér ég þó loksins getað fundið tilfinningar á ný,“ sagði Stewart í viðtali við Elle UK.
„Þegar ég átti í sambandi við strák faldi ég allt vegna þess að allir persónulegu hlutirnir sem ég gerði voru strax gerðir að einhverju lítilvægu,“ játaði Stewart, sem hingað til hefur ekki verið hrifin af því að ræða einkalíf sitt í fjölmiðlum.
„Okkur var breytt í sögupersónur og var svo komið fyrir í fáránlegri teiknimyndasögu. Ég hugsaði með mér: þetta er mitt. Þið eruð að gera sambandið mitt að einhverju sem það er ekki, og mér líkaði það ekki.“