Brit-tónlistarverðlaunahafinn Tom Odell snýr aftur í Hörpu og heldur tónleika í Eldborg 24. ágúst. Nýja platan hans, Wrong Crowd, hefur fengið frábæra dóma og selst vel um heim allan en Odell tróð síðast upp hér á landi 26. júní 2014.
Samkvæmt tilkynningu frá tónleikahaldara spilar Odell lög af nýju plötunni auk vinsælustu laga hans. Síðast seldist upp á tónleika Odell á nokkrum dögum og fengu þeir frábæra dóma.
Miðasala hefst miðvikudaginn 3. ágúst á tix.is.