Gamanleikarinn Eddie Murphy greindi frá því á dögunum að hann hefði á sínum tíma afþakkað að prufa kókaín með leikurunum John Belushi og Robin Williams.
„Ég drekk ekki áfengi. Það er ekki út af siðferðisástæðum, ég bara geri það ekki. Og ég nota heldur ekki fíkniefni,“ sagði leikarinn í viðtali við Hollywood Reporter.
Leikarinn rifjaði síðan upp kvöldstund sem hann átti með leikurunum John Belushi og Robin Williams snemma á níunda áratugnum.
„Belushi og Robin Williams buðu mér kók. Ég vildi ekki fá mér og Belushi kallaði mig uppskafning.“
Murphy sá aldrei eftir ákvörðun sinni, en Belushi lést árið 1982 eftir of stóran skammt fíkniefna.