Fyrrverandi fótboltakappinn og núverandi kaupsýslumaðurinn og fyrirsætan David Beckham er sérlega hrifinn af húðflúrum.
Kappinn skartar fjöldanum öllum af flúrum og er sífellt að bæta í safnið, sem er orðið ansi veglegt.
Á dögunum fékk hann sér enn eitt húðflúrið, en eiginkona hans Victoria Beckham frumsýndi nýjustu skrautfjöðrina á Instagram.
„Eftir ótrúlega listamanninn Mark Mahoney á Shamrock Social Club,“ skrifaði hin stolta eiginkona um nýja flúrið sem sjá má hér að neðan.
Amazing artist Mark Mahoney @Shamrocksocialclub @davidbeckham X kisses from Los Angeles 🇺🇸😎 VB 🐴
A photo posted by Victoria Beckham (@victoriabeckham) on Aug 21, 2016 at 12:27pm PDT