Flestir muna eftir Janice úr gamanþáttunum Friends, enda afar eftirminnilegur karakter með skræka rödd og sérkennilegan hlátur sem fór mikið í taugarnar á mörgum.
Leikkonan Maggie Wheeler, sem fór með hlutverk Janice á sínum tíma, kom fram í sjónvarpsviðtali á dögunum og óhætt er að segja að hún líkist Janice ekki vitund.
„Í upphafi átti ég aðeins að leika í einum þætti en af honum fæddust 10 stórkostlega skemmtileg ár.“
„Það kom mér alltaf á óvart að hún skyldi fá áframhaldandi líf í þáttunum og ég var alltaf í skýjunum þegar höfundarnir ákváðu að fá mig aftur.“
Viðtalið má sjá hér að neðan, og fátt annað hægt að segja en „Oh my God“.