Leikkonan og plötusnúðurinn Ruby Rose, sem vakti gríðarlega athygli í þáttunum Orange Is the New Black, hefur sagt skilið við kærustu sína Harley Gusman.
Stöllurnar greindu frá sambandi sínu fyrr í sumar og voru í kjölfarið ófeimnar við að deila ljósmyndunum af hvor annarri á samfélagsmiðlum sínum.
Sambandið gekk þó ekki upp, að sögn heimildarmanns tímaritsins People.
„Þetta gekk einfaldlega ekki upp. Þær voru ekki á sömu blaðsíðu.“
Rose var áður í sambandi við Phoebe Dahl, en þær slitu trúlofun sinni í desember á síðasta ári.