Netflix hefur endurnýjað samninginn við aðstandendur þáttanna Stranger Things og er því ljóst að önnur þáttaröð mun líta dagsins ljós, mörgum til mikillar ánægju.
Fer þáttaröðin í loftið á næsta ári og mun innihalda níu þætti, en sú síðasta hafði að geyma átta.
Þessar fregnir koma varla nokkrum á óvart, enda hafa þættirnir vægast sagt slegið í gegn síðan þeir komu út í sumar. Heimildarmenn tímaritsins Variety segja að vinna við aðra þáttaröð sé þegar hafin.