Fyrrverandi unnustinn segist ekki vera staurblankur

Egor Tarabasov og Lindsay Lohan á meðan allt lék í …
Egor Tarabasov og Lindsay Lohan á meðan allt lék í lyndi. Skjáskot Instagram

Stormasamt samband leikkonunnar Lindsay Lohan og Egor Tarabasov hefur verið mikið í sviðsljósinu undanfarið, en leikkonan batt nýverið endi á trúlofun þeirra.

Þá greindi hún einnig frá því í rússneskum spjallþætti að Tarabasov, sem gefur sig út fyrir að vera mikils metinn viðskiptajöfur, sé í raun staurblankur og lifi á vasafé sem faðir hans leggur til.

Frétt mbl.is: Þurfti að borga trúlofunarhringinn sjálf

Líkt og fram kemur í frétt Daily Mail er Tarabasov ekki alls kostar sáttur við fullyrðingar Lohan, en hann á að hafa sagt vinum sínum að hann hafi verið fyrirvinnan á heimilinu meðan á 11 mánaða sambandi þeirra stóð.

„Lindsay var með aðgang að kreditkorti Egors, en hún nýtti sér það reglulega til að kaupa gjafir fyrir sjálfa sig og fjölskyldu sína,“ er haft eftir heimildamanni tengdum hinum rússneska Tarabasov.

Frétt mbl.is: Óttaðist að Egor myndi skvetta sýru framan í hana

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú veist ekki hversu miklu þú kemur í verk ef þú bara hefst handa. Þú hefur aldrei farið troðnar slóðir og ættir ekkert að vera að byrja á því núna.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú veist ekki hversu miklu þú kemur í verk ef þú bara hefst handa. Þú hefur aldrei farið troðnar slóðir og ættir ekkert að vera að byrja á því núna.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson