Líf Kardashian fjölskyldunnar er gjarnan mikið á milli tannanna á fólki, enda eru meðlimir hennar duglegir að auglýsa sig á samfélagsmiðlum sem og í sjónvarpsþáttum sínum.
Uppátæki Rob Kardashian hefur þó fallið í grýttan jarðveg en hann deildi símanúmeri yngstu systur sinnar, Kylie Jenner, á twitter.
Ástæðan er sú að systur hans buðu ekki unnustu og barnsmóður Robs, Blac Chyna, í barnaboð sem þær voru að skipuleggja fyrir hann.
Lengi hefur andað köldu á milli Kardashian / Jenner systranna og Blac Chyna en sú síðarnefnda er barnsmóðir Tyga, sem nú er kærasti Kylie Jenner. Þær hafa þó margoft greint frá því að þær séu búnar að grafa stríðsöxina.
„Buðuð ekki barnsmóður minni í barnaboð sem þið voruð að reyna að halda fyrir mig. Þið hljótið að hafa tapað fjandans glórunni,“ skrifaði Rob á Twitter, og klykkti út með því að birta símanúmer Kylie Jenner.
Jenner, eða hinar systurnar, hafa ekki svarað fyrir sig. Búið er að loka símanúmerinu sem Kardashian deildi, líkt og fram kemur í frétt Mirror.
Didn't invite the Mother of my child to a baby shower you all were trying to throw for me ‼️? You all must have lost your damn minds ,,,🙋🏿
— ROBERT KARDASHIAN (@robkardashian) September 27, 2016