Jolie fær forræðið til bráðabirgða

Brad Pitt og Angelina Jolie á meðan allt lék í …
Brad Pitt og Angelina Jolie á meðan allt lék í lyndi. AFP

Angelina Jolie hefur náð samkomulagi til bráðabirgða við Brad Pitt um að hún fái forræði yfir börnunum sex. Hann fær hins vegar heimild til þess að heimsækja þau.

Þetta kemur fram í fjölmörgum fjölmiðlum í gær. Bæði ætla að leita sér ráðgjafar og Pitt verður gert að fara í áfengis og vímuefnapróf, samkvæmt frétt TMZ. Pitt hefur þegar farið sjálfviljugur í slíkt próf og reyndist það neikvætt.  

Jolie fær forræðið yfir börnunum en Pitt fær að heimsækja þau. Í fyrstu undir eftirliti sérfræðings sem mun síðan ákvarða um framahaldið á næstu vikum.

People vefurinn segir að þau hafi komist að samkomulaginu á eigin vegum og hið opinbera hafi hvergi komið þar nærri. Áætlunin nær til 20. október og þangað til munu börnin búa hjá móður sinni í húsi sem hún hefur tekið á leigu í Los Angeles.

Jolie óskaði eftir skilnaði frá Pitt 19. september og krafðist þess að fá fullt forræði yfir börnunum. Þau Jolie og Pitt gengu í hjónaband í ágúst 2014 en hafa verið par síðan 2004.

Bandaríska alríkislögreglan er að safna saman upplýsingum varðandi atvik tengt Pitt og börnunum í flugvél á leið frá Frakklandi. Fjölmiðlar hafa greint frá því að Pitt hafi misst stjórn á sér um borð í flugvélinni en áður engin ákvörðun hefur verið tekin um hvort formleg rannsókn fari fram á atvikinu. 

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú finnur til einmanaleika og einangrunar. Biddu um aðstoð, það er engin skömm að því. Börnin krefjast athygli þinnar sem aldrei fyrr.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Harry Whittaker og Lucinda Riley
2
Ragnar Jónasson
3
Sólveig Pálsdóttir
4
Moa Herngren
5
Jojo Moyes
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú finnur til einmanaleika og einangrunar. Biddu um aðstoð, það er engin skömm að því. Börnin krefjast athygli þinnar sem aldrei fyrr.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Harry Whittaker og Lucinda Riley
2
Ragnar Jónasson
3
Sólveig Pálsdóttir
4
Moa Herngren
5
Jojo Moyes