Hollywood-leikarinn Ben Stiller er greinilega mikill aðdáandi Ólafs Darra Ólafssonar. „Þessi maður er ótrúlegur leikari,“ skrifaði Stiller á Twitter þegar hann „retweetaði“ áminningu til fólks um að fylgjast með þáttunum The Missing sem sýndir eru á BBC1 en Ólafur Darri fer með hlutverk í þeim þáttum.
Þess má geta að Ólafur Darri og Stiller léku saman í kvikmyndunum The Secret Life Of Walter Mitty og Zoolander 2.
This guy is an amazing actor. https://t.co/ADiMapb2X4
— Ben Stiller (@RedHourBen) October 19, 2016