Lætur útbúa öryggisherbergi á heimili sínu

Kim Kardashian er síður en svo búin að jafna sig …
Kim Kardashian er síður en svo búin að jafna sig eftir árásina sem átti sér stað í París. AFP

Kim Kardashian er sögð vera að láta útbúa öryggisherbergi (e. panic room) á heimili sínu í Los Angeles.

Kardashian er enn brugðið eftir árásina sem hún varð fyrir í París fyrir tæpum þremur vikum þegar fimm vopnaðir menn ruddust inn í hótelherbergi hennar, beindu að henni byssum og höfðu á brott með sér mikil verðmæti. Raunveruleikastjarnan og eiginmaður hennar, Kanye West, eru því sögð hafa aukið öryggisgæslu í kringum fjölskylduna.

Samkvæmt frétt Daily Mail mun kostnaðurinn við öryggisherbergið vera í kringum 100 þúsund Bandaríkjadali, eða tæplega 11,5 milljónir íslenskra króna. Heimildamaður segir einnig að herbergið eigi að þola eld og jarðskjálfta upp að sjö gráðum á Richter. Það á auk þess að vera búið öryggismyndavélum.

Þá er haft eftir fjölskylduvini að Kardashian sé síður en svo búin að jafna sig eftir árásina.

„Hún hefur það ekki gott. Þetta er verra en fólk heldur. Hún hefur verið að fá svæsin kvíðaköst og neitar að vera ein. Þá hefur hún einnig verið að fá martraðir auk þess sem hún hefur verið að endurupplifa atburðinn. Hún er alger taugahrúga og er sérstaklega kvíðin seint á kvöldin.“

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú finnur til einmanaleika og einangrunar. Biddu um aðstoð, það er engin skömm að því. Börnin krefjast athygli þinnar sem aldrei fyrr.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Harry Whittaker og Lucinda Riley
2
Ragnar Jónasson
3
Sólveig Pálsdóttir
4
Moa Herngren
5
Jojo Moyes
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú finnur til einmanaleika og einangrunar. Biddu um aðstoð, það er engin skömm að því. Börnin krefjast athygli þinnar sem aldrei fyrr.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Harry Whittaker og Lucinda Riley
2
Ragnar Jónasson
3
Sólveig Pálsdóttir
4
Moa Herngren
5
Jojo Moyes