Rapparinn Kanye West fór mikinn á tónleikum á miðvikudaginn, þar sem hann húðskammaði félaga sinn Jay Z.
West er að sögn ekki ánægður með að Jay Z hafi ekki komið í heimsókn eftir að Kim Kardashian, eiginkona Wests, var rænd á dögunum.
„Ekki hringja í mig eftir ránið til að spyrja hvernig mér líður. Ef þú vilt vita hvernig mér líður skaltu kíkja í heimsókn. Komdu með krakkana. Við skulum setjast niður líkt og við séum bræður. Ég þoli þetta rugl ekki. Börnin okkar hafa ekki einu sinni leikið sér saman.“
Heimildamaður slúðurmiðilsins Page Six heldur því þó fram að Jay Z hafi aldrei litið á West sem vin sinn, og eigi í raun erfitt með að vera í kringum hann.
„Jay þolir hann ekki. Hann lítur á hann sem klikkaðan sérvitring sem hann getur aðeins afborið í smáum skömmtum. Í raun og veru vill Jay lítið með hann hafa. Hann vill hafa sitt rými og finnst gott að vera út af fyrir sig. Kanye er gaur sem vill alltaf vera í sviðsljósinu.“