Leikstjóri kvikmyndarinnar Deadpool 2 er sagður hafa sagt upp störfum eftir að hafa átt í erjum við aðalleikara kvikmyndarinnar, Ryan Reynolds.
Leikstjórinn, Tim Miller, sá einnig um að leikstýra fyrri myndinni sem naut mikilla vinsælda en Reynolds var einnig einn af framleiðendum hennar.
Mennirnir eru sagði hafa átt í erjum eftir að listrænn ágreiningur kom upp, en verið er að velja leikara til þess að fara með hlutverk í kvikmyndinni.
Samkvæmt frétt Mirror stendur leit yfir að kvenhetjunni Domino og hafa Ruby Rose, Sienna Miller og Sofia Boutella meðal annarra verið orðaðar við hlutverkið.