Mel Gibson á von á sínu níunda barni með ástkonu sinni, Rosalind Ross. Leikarinn, sem er sextugur, segist ekki kvíða fæðingunni enda sé hann allt of gamall fyrir slíkt.
„Hvað munar mig um eitt í viðbót? Ég er bara þarna til þess að grípa. Ég er of gamall til þess að verða taugaóstyrkur. Ég held að ég sé uppiskroppa með adrenalín, þannig að ég bregst varla við lengur,“ sagði leikarinn í nýlegu viðtali.
Von er á barninu í byrjun næsta árs, en þetta er fyrsta barn Gibson og Ross saman. Gibson á þó fyrir sjö börn með fyrrverandi eiginkonu sinni, Robyn Moore, en þau voru gift í 26 ár. Þá á hann einnig eina dóttur með fyrrverandi ástkonu sinni, Oksana Grigorieva.
Frétt People