Lítið hefur farið fyrir raunveruleikastjörnunni Kim Kardashian undanfarnar vikur, þar sem hún hefur haldið sig utan sviðsljóssins síðan hún var rænd í París fyrr í mánuðinum.
Rúmlega þrjár vikur eru síðan árásin átti sér stað, en fimm vopnaðir menn ruddust inn í hótelherbergi stjörnunnar, beindu að henni byssum, bundu hana og höfðu á brott með sér mikil verðmæti.
Kardashian er sögð vera að braggast, þótt hún hafi ekki í hyggju að snúa aftur til vinnu á allra næstu dögum.
Frétt mbl.is: Kim Kardashian að braggast
Í gær skellti hún sér á tónleika eiginmanns síns, en það er í fyrsta skipti sem stjarnan sést opinberlega eftir að ránið átti sér stað. Hún lét þó lítið fyrir sér fara á tónleikunum, stillti sér ekki upp á myndum og deildi engum upplýsingum um kvöldið á samfélagsmiðlum. Þá var klæðnaður hennar og förðun einnig látlaus, eins og fram kemur í frétt Daily Mail.