Fregnir herma að ástralski auðkýfingurinn James Packer hafi bundið endi á samband sitt við söngkonuna Mariah Carey, en sagan segir að honum hafi ofboðið óhófleg peningaeyðsla hennar.
Packer og Carey trúlofuðu sig á síðasta ári en sem frægt er orðið fékk Carey 35 karata demantshring sem metinn er á 10 milljónir Bandaríkjadala, eða rúmlega 1,1 milljarð íslenskra króna.
Frétt mbl.is: Fékk 35 karata demantshring
Samkvæmt frétt Daily Mail var Packer ósáttur við eyðslu unnustunnar, auk þess sem hann var ekki hrifinn af því að taka þátt í raunveruleikaþætti stjörnunnar Mariah‘s World.
„James hafði miklar efasemdir varðandi nýja raunveruleikaþáttinn hennar og þá staðreynd að hún var reiðubúin að opinbera líf þeirra fyrir heimsbyggðinni,“ er haft eftir ónefndum heimildarmanni tengdum Packer.
Frétt mbl.is: Skipuleggur íburðarmikið brúðkaup
Carey var áður gift útgáfustjóranum Tony Mottola. Þá gekk hún að eiga rapparann Nick Cannon árið 2008, en saman eiga þau tvö börn. Packer á einnig hjónaband að baki, en hann var áður giftur Ericu Baxter.