Þrátt fyrir að hafa lýst því yfir fyrr á árinu að hún hefði engan tíma fyrir karlmann í lífi sínu virðist umboðsmaðurinn Lonnie Cooper hafa fengið kvikmyndastjörnuna Sharon Stone til að skipta um skoðun.
Lonnie og Sharon sem eru nýtt par nutu lífsins svo um munaði í rómantísku fríi á ströndum St. Barts á dögunum er þau léku sér saman í sjónum og skemmtu sér.
Sharon sem er orðin fimmtíu og átt ára leit stórkostlega út á ströndinni og sýndi ótrúlegan líkama sinn í skvísulegum sundbol nýja kærastanum og öðrum til mikillar ánægju