Fréttir berast nú vestanhafs þess efnis að raunveruleikastjarnan Kim Kardashian vilji skilja við eiginmann sinn og rapparann Kanye West þegar tíminn er réttur. Samkvæmt heimildum ætlar hún sér einni að ná fullu forræði yfir börnum þeirra tveimur, North og Saint.
Kim er að niðurlotum komin eftir röð áfalla á árinu en áður en þau dundu yfir var farið að hrikta í stoðum sambandsins. Kanye er þessa dagana að jafna sig eftir taugaáfall og hefur Kim setið honum við hlið í gegnum það. Sjálf er Kim að jafna sig eftir vopnað rán sem átti sér stað í París fyrr í vetur.
Kim segist upplifa sig fasta og óhamingjusama í hjónabandinu.