Poppdrottningin Madonna greindi frá því í spjallþætti James Corden að hún hefði átt vingott við Michael Jackson. Þá sagði hún einnig að hún hefði tekið af skarið, enda hafi Jackson verið fremur feiminn að eðlisfari.
„Auðvitað elskan, ég hef komið víða við,“ sagði söngkonan við Corden og bætti við að um alvöru franskan koss hefði verið að ræða, eða tungukoss líkt og hún orðaði það sjálf.
„Hann var þó fús og viljugur. Ég gaf honum glas af hvítvíni til þess að slaka á og það virkaði stórvel.“
Söngkonan lét orðin falla í „bílakaraókíinu“ svokallaða, eða „Carpool Karaoke“.