Söngvarinn Mick Jagger varð í dag faðir í áttunda sinn. Jagger, sem er 73, ára og kærasta hans, hin 29 ára gamla Melanie Hamrick, eignuðust son í morgun.
Fyrir á Jagger sjö börn á aldrinum 17 til 45 ára en hann varð langafi fyrir tveimur árum.
Jagger og Hamrick eru bæði í skýjunum, eins og kemur fram í yfirlýsingu frá þeim eftir fæðingu erfingjans:
„Mick var viðstaddur fæðinguna. Móður og barni heilsast vel og við biðjum fjölmiðla um að sýna þeim skilning og veita þeim það næði sem þarf á þessum tíma.“