Sjónvarpsstöðin E! hefur nú birt brot úr komandi þáttaröð Keeping Up With The Kardashians sem tekin verður til sýninga fljótlega. Þar sést Kim Kardashian í fyrsta skipti ræða árásina sem hún varð fyrir í október þegar grímuklæddir menn brutust inn á hótelherbergi hennar og rændu.
Kim á greinilega mjög erfitt með frásögnina og segist hafa verið þess fullviss að hún myndi deyja. Móðir hennar og eldri systur, Khloé og Kourtney, eru hjá henni og hlusta á. Kim segist varla geta rætt hvað gerðist en þetta hafi verið það skelfilegasta sem hún hafi lent í.
Ekki vill betur til en svo að í miðju viðtalinu fær Kim símtal þess efnis að eiginmaður hennar Kanye West hafi brotnað niður á tónleikum og verið fluttur á sjúkrahús. Kim brestur aftur í grát og segir við móður sína og systur að hún verði að fara til hans. Hann þurfi á henni að halda.
Heimsbyggðin bíður spennt eftir nýju þáttaröðinni enda ljóst að Kardashian dramatíkin er í algjöru hámarki.