Fyrrverandi körfuboltakappinn Lamar Odom greindi frá því í sjónvarpsviðtali að hann vildi gjarnan vinna fyrrverandi eiginkonu sína aftur á sitt band, en hann var giftur raunveruleikastjörnunni Khloé Kardashian.
Odom var gestur í spjallþættinum The Doctors þegar hann var spurður hvað hann vildi gera við líf sitt.
„Satt best að segja langar mig að fá konuna mína aftur,“ svaraði Odom.
Odom og Kardashian gengu í hjónaband árið árið 2009, en þau slitu sambandi sínu fjórum árum síðar. Skilnaðurinn hafði þó enn ekki gengið í gegn þegar Odom fannst rænulaus á vændishúsi í Nevada í október 2015. Kardashian ákvað að slá skilnaðinum á frest svo hún gæti verið Odom til halds og trausts í bataferlinu.
Þegar Odom hafði síðan náð sér sótti Kardashian á ný um skilnað, en hún á nú í sambandið við körfuboltakappann Tristan Thompson.
Frétt Daily Mail