Leikarinn Matthew McConaughey lagði ýmislegt á sig fyrir hlutverk sitt í kvikmyndinni Gold, en hann þurfti að þyngja sig töluvert.
Leikarinn er kominn aftur í sitt fyrra form, en hann segir að fjölskylda hans sjái eftir þeim tíma þegar hann var „fitubolla“ eins og hann segir sjálfur frá.
„Ég hef tekið að mér fullt af hlutverkum þar sem þess var krafist að ég léttist mikið. Fyrir þessa kvikmynd þurfti ég þó að þyngjast, sem er miklu skemmtilegra,“ sagði leikarinn í nýlegu viðtali.
Leikarinn viðurkennir að hafa borðað hamborgara í morgunmat, auk þess sem hann slakaði á öllum reglum.
„Það var í lagi að hafa pítsu í matinn á hverju kvöldi, og ef krakkarnir vildu fara í keilu á miðnætti á virku kvöldi var það líka frábær hugmynd. Sömuleiðis voru hamborgarar og bjór í morgunverð ljómandi góð hugmynd.“
„Þetta var skemmtilegt og fjölskyldan mín saknar þess þegar ég var „fitubolla“. Ég var feitur og glaður.“