Leikkonan Lily Collins er í óða önn að kynna nýjustu mynd sína, To the Bone, þar sem hún leikur stúlku sem þjáist af átröskun.
Collins þjáðist sjálf af sjúkdómnum á sínum yngri árum, og tók hlutverkið því verulega á taugarnar.
„Þetta var tvímælalaust afar dramatískt hlutverk fyrir mig, þar sem ég þjáðist einnig af átröskun á unglingsárunum,“ sagði Collins í viðtali.
Leikkonan þurfti að létta sig talsvert fyrir hlutverkið, en að þessu sinni gerði hún það í samvinnu við næringarfræðing.
„Hlutverkið varð til þess að ég þurfti aftur að fara á þennan stað, en á eins heilbrigðan máta og hægt er og með hjálp næringarfræðings.“
Frétt Daily Mail