Sjaldan fellur eplið langt frá eikinni, er eflaust það sem margir hugsuðu með sér þegar þeir litu ljósmynd af yngsta syni Ivönku Trump augum. Drengurinn, Theodore James Kushner, er ansi hárprúður og hafa margir bent á líkindi piltsins og afa hans.
Ivanka Trump deildi myndinni af piltinum á Instagram í gær og hefur hún vakið mikla kátínu.
„Sunnudagsskap,“ skrifaði hún við ljósmyndina.
Hárið á Donald Trump hefur verið mikið í umræðunni undanfarin ár, en hann þykir skarta fremur sérstæðri hárgreiðslu. Þá hefur einnig verið bent á líkindin á milli hárs forsetans og móður hans heitinnar, Mary Trump.
Frétt mbl.is: Sjaldan fellur eplið langt frá eikinni
Á dögunum greindi læknir forsetans síðan frá því hvert leyndarmálið á bak við hármakka Trumps er.
Frétt mbl.is: Ráðgátan á bak við hármakkann leyst