Kennir syninum að virða konur

Adele segir soninn ganga fyrir.
Adele segir soninn ganga fyrir. AFP

Söngkonan Adele hefur í mörgu að snúast, enda hefur hún verið önnum kafin undanfarið ár. Þrátt fyrir stíft tónleikahald segir söngkonan að uppeldi sonarins, hins fjögurra ára gamla Angelo, gangi fyrir.

Samkvæmt frétt Daily Mail segist söngkonan vera að ala piltinn upp með það að leiðarljósi að hann læri að virða konur.

„Ég er að ala hann upp þannig að hann virði konur. Hann veit að ég er máttug. Hann finnur fyrir því heima og einnig þegar hann kemur með mér í vinnunna. Og ég tek hann með mér hvert sem ég fer, hvort eð er,“ sagði söngkonan, sem hingað til hefur ekki mikið viljað tjá sig um einkalíf sitt í fjölmiðlum.

Á dögunum viðurkenndi hún þó að hún hefði gengið í hjónaband með barnsföður sínum, Simon Konecki. Söngkonan gerði það þó með fremur lúmskum hætti.

Frétt mbl.is: Adele staðfestir orðróminn

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú finnur til einmanaleika og einangrunar. Biddu um aðstoð, það er engin skömm að því. Börnin krefjast athygli þinnar sem aldrei fyrr.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Harry Whittaker og Lucinda Riley
2
Sólveig Pálsdóttir
3
Moa Herngren
4
Ragnar Jónasson
5
Jojo Moyes
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú finnur til einmanaleika og einangrunar. Biddu um aðstoð, það er engin skömm að því. Börnin krefjast athygli þinnar sem aldrei fyrr.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Harry Whittaker og Lucinda Riley
2
Sólveig Pálsdóttir
3
Moa Herngren
4
Ragnar Jónasson
5
Jojo Moyes