„Einhver draugur í þessu verki“

Amiina.
Amiina.

Hljómsveitin Amiina flytur tónlist sína við kvikmyndina Fantômas, þögla spennumynd frá árinu 1913 eftir franska kvikmyndaleikstjórann Louis Feuillade, á tvennum tónleikum á Húrra í kvöld, miðvikudag, og annað kvöld og hefjast tónleikarnir klukkan 21 bæði kvöldin.

Tónlistina sömdu meðlimir Amiinu að ósk franska tónskáldsins og tónlistarmannsins Yann Tiersen, sem skipulagði hrekkjavökuviðburð í tengslum við aldarafmæli Fantômas-kvikmyndanna fyrir rúmum þremur árum og frumflutti hljómsveitin tónlistina á hrekkjavöku 2013 í Théâtre du Châtelet í París. Platan með tónlistinni, fjórða plata Amiinu, kom síðan út nú fyrr í vetur og eftir tónleikana á Húrra mun sveitin flytja verkið víða um lönd. Fyrri plötum sveitarinnar hefur verið dreift víða við frábærar viðtökur.

„Við verðum með nokkuð aðra uppsetningu en fólk á að venjast á Húrra. Það verður setið og komast líklega ekki nema um níutíu manns að hvort kvöld,“ segir Sólrún Sumarliðadóttir, einn hljómsveitarmeðlimanna. „Kvikmyndinni verður varpað á sýningartjald en við flytjum tónlistina ekki nema kvikmyndin sé sýnd um leið.“

Sólrún segir að Amiina hafi byrjað að semja tónlist við eða út frá kvikmyndum árið 2009, en það var út frá hreyfimyndum þýska leikstjórans Lotte Reiniger sem var frumkvöðull á því sviði. „Við sömdum tónlist við fjórar af stuttum myndum Reiniger, sem eru líka um hundrað ára gamlar. Það er erfitt að útskýra hvað það er nákvæmlega sem heillar okkur við þennan tíma, hennar myndir eru klassísk ævintýri og ákveðið tímaleysi í þeim, en það er ekkert tal í þeim frekar en í Fantômas en myndefnið stendur fyrir sínu og gefur ákveðið pláss fyrir tónlistina.“

Samspil við kvikmynd hlýtur að skapa hljómsveitinni ákveðinn ramma að vinna innan, leita þau meðvitað í það?

„Nei, það get ég ekki sagt. Rétt eins og með tónlistina við kvikmyndir Reiniger þá vorum við upphaflega beðin um að semja við Fantômas. Yann Tiersen bað fimm listamenn eða hljómsveitir að semja við fimm Fantômas-kvikmyndir og það var allt flutt á einu kvöldi 2013, sjö klukkustunda viðburður. Verkið fylgdi okkur síðan um tíma áður en við ákváðum að gefa tónefninu meira pláss og gefa það út á plötu. “

Sólrún segir ýmislegt hafa komið uppá og teygst á verkefninu. „Ári eftir að við frumfluttum tónlistina þá tókum við hana upp og svo leið aftur ár þar til við mixuðum og svo enn eitt ár þar til við gáfum út! Og allt gerðist það í kringum hrekkjavöku, ár hvert. Það er einhver draugur í þessu verki,“ segir hún og hlær.

Næsta plata allt öðruvísi

Amiina var upphaflega strengjakvartett sem þær Sólrún, Edda Rún Ólafsdóttir, Hildur Ársælsdóttir og María Huld Markan stofnuðu í Tónlistarskólanum í Reykjavík og spiluðu þær um tíma sem strengjasveit Sigur Rósar. „Nú erum við hins vegar fimm manna hljómsveit,“ segir Sólrún. „Edda Rún hefur ekki verið með okkur um tíma en Magnús Tryggvason Elíassen og Guðmundur Vignir Karlsson komu inn fyrir þó nokkuð mörgum árum. Í Fantômas-verkefninu er Hildur þó ekki með okkur. Þetta er nokkuð sveigjanleg hljómsveit. Það hentar vel, sérstaklega síðustu ár þegar við höfum öll verið að hlaða niður börnum en það er helsta ástæðan fyrir nauðsynlegum sveigjanleika,“ segir hún og brosir. „Svo leggst Amiina í dvala á milli enda erum við öll upptekin í allrahanda öðrum verkefnum. En þetta var ekki síðasta platan – og ég held að næsta plata verði allt öðruvísi... Við höfum alltaf forðast að hugsa um hvað við gerðum síðast, við hlustum bara á það sem kallar á okkur og fylgjum því.“

Sólrún segir tónlist Amiinu mikið verða til í spuna. Fantômas-verkinu megi reyndar skipta í tvennt, akústískari lögin, sem verða til í sameiginlegu flæði, og svo önnur sem eru með sterkari taktfókus en þar hafi Vignir oft komið með rafrænan grunn sem unnið sé ofan á.

Framundan eru tónleikar víða. „Við fórum til Danmerkur í haust, héldum tvenna tónleika í Berlín og aðra í Belfast. Um næstu mánaðamót leikum við í Belgíu, í apríl tökum við þátt í stóru Íslandshátíðinni í Los Angeles og svo tekur við tveggja vikna tónleikaferð um Hong Kong og Kína, þar leikum við í sex borgum og það verður spennandi.“

Platan Fantômas.
Platan Fantômas.
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú finnur til einmanaleika og einangrunar. Biddu um aðstoð, það er engin skömm að því. Börnin krefjast athygli þinnar sem aldrei fyrr.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Harry Whittaker og Lucinda Riley
2
Ragnar Jónasson
3
Sólveig Pálsdóttir
4
Moa Herngren
5
Jojo Moyes
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú finnur til einmanaleika og einangrunar. Biddu um aðstoð, það er engin skömm að því. Börnin krefjast athygli þinnar sem aldrei fyrr.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Harry Whittaker og Lucinda Riley
2
Ragnar Jónasson
3
Sólveig Pálsdóttir
4
Moa Herngren
5
Jojo Moyes