Madonna ættleiddi á dögunum fjögurra ára tvíburasystur frá Malaví, en að eigin sögn fannst henni hún knúin til þess að taka stúlkurnar að sér.
Móðir stúlknanna, sem heita Esther og Stella, lést af barnsförum og höfðu þær dvalið á munaðarleysingjahæli undanfarin ár.
Frétt mbl.is: „Knúin“ til að ættleiða tvíburana
Söngkonan er himinlifandi með að hafa getað stækkað fjölskyldu sína og er dugleg að deila myndum og myndskeiðum af dætrunum á samfélagsmiðlum.
Þá deildi Madonna mynd af stúlkunum, sem klæddar voru í íþróttagalla í stíl.
Today's Blessing brought to you by Adidas! ⭐️🌟😂🌈🌈🎉🎉🌼🌼💝💝😂🙏🏻
A post shared by Madonna (@madonna) on Feb 21, 2017 at 9:20am PST
Á dögunum birti hún einnig myndband þar sem stúlkurnar sjást syngja hástöfum og er augljóslega kátt á hjalla.
A little night Music.........,,🌟⭐️🌟⭐️🌟⭐️😂💘🌸🙏🏻
A post shared by Madonna (@madonna) on Feb 18, 2017 at 5:50pm PST