Söngkonan Cheryl Fernandez-Versini hefur loksins staðfest þrálátan orðróm þess efnis að hún eigi von á barni.
Söngkonan hafði um langt skeið neitað því að hún bæri barn undir belti, jafnvel þótt farið væri að móta fyrir kúlu, en á dögunum sat hún fyrir í nýrri auglýsingaherferð og leyndi blómleg bumban sér ekki.
Þetta er fyrsta barn söngkonunnar og kærasta hennar, Liam Payne, en þau eru talin hafa farið að stinga saman nefjum í lok árs 2015 eins og fram kemur í frétt Daily Mail.