Forsetafrú Bandaríkjanna, Melania Trump, virðist ekki þola eiginmann sinni Donald Trump. Þau búa ekki saman og heimildir segja að þau sofi hvort í sínu herberginu þegar þau eru stödd í sömu borginni.
New York Magazine greinir frá því að ákvörðun Melaniu um að flytja ekki strax til Washington sé meðal annars vegna þess að hún þoli ekki að vera nálægt honum.
Fjölmargir heimildarmenn segja að þegar þau séu stödd á sama staðnum þá sofi þau ekki í sama herberginu. „Þau eru með hvort sitt svefnherbergið,“ sagði einn heimildarmaður og annar sagði að þau eyddu aldrei nótt saman.