Spænski leikarinn Antonio Banderas greindi frá því á dögunum að hann hafi fengið hjartaáfall í lok janúar.
Samkvæmt TMZ greindi hjartaknúsarinn frá veikindunum í viðtali við spænska fjölmiðla. Hann segist vera betri núna og veikindin væru ekki alvarleg. En leikarinn sem er 56 ára fór í aðgerð í Sviss.