Ríka og fræga fólkið borgar háar upphæðir til þess að eignast börnin sín á fæðingardeild sem býður upp á kampavín og lax á matseðlinum.
Mirror greinir frá því að söngkonan Cheryl og One Direction-liðsmaðurinn Liam Payne eignuðust sitt fyrsta barn í síðustu viku á fæðingardeild Chelsea- og Westminster-spítalans og borguðu tæpar 1,2 milljónir fyrir.
Dýru herbergin eru í Kensington-álmu spítalans og búa þau yfir lúxusaðbúnaði eins og stofu, flatskjá, neti og lúxusmatseðli. Eins og sjá má á myndunum líkjast herbergin frekar hótelherbergjum en venjulegum spítalaherbergjum.