J.K. Rowling upplýsti á Twitter á dögunum að Donald Trump hefði ekki verið í Slytherin-heimavistinni líkt og margir Harry Potter-aðdáendur hafa líklega ímyndað sér. Hefði Trump verið persóna í bókinni hefði hann ekki verið göldróttur og þar af leiðandi muggi.
Samkvæmt Time tísti Harry Potter-aðdáandi á Twitter að Donald Trump ásamt sonum og tengdasyni hefðu verið í Slytherin-heimavistinni en Slytherin-heimavistin er fræg fyrir illgjarna galdramenn eins og Voldemort.
Rowling, höfundur Harry Potter-bókanna, svaraði því hins vegar að Donald Trump hefði aldrei fengið boð um inngöngu í skólann.
You've got to get the letter before you put on the hat, Oliver. https://t.co/KFvRtrwdpy
— J.K. Rowling (@jk_rowling) 27 March 2017