Það prumpa allir hvort sem þeir vilja viðurkenna það eða ekki. Sumar stjörnur hafa verið ófeimnar við að ræða prump, Perez Hilton tók saman lista yfir stjörnur sem hafa tjáð sig um prump.
Leikkonan Jennifer Lawrence segist vilja að menn prumpi fyrir framan í sig. Hún kenndi meira segja samleikurum sínum úr Hungurleikunum að prumpa framan í annað fólk.
Tónlistarmaðurinn Ed Sheeran segist prumpa mjög mikið á tónleikum. Einu sinni prumpaði hans svo duglega að það kom aðeins meira en bara loft.
Söngkonan Katy Perry segist prumpa mikið enda sé hún með mikið loft í maganum. Henni er orðið alveg sama um prump hún hefur átt svo mörg vandræðaleg augnablik.
Þegar leikarinn Brad Pitt var giftur Jennifer Aniston sagði hann að hann gæti legið upp í rúmi og borðað ís og prumpað.
„Ég get prumpað eins hátt og hvaða karlmaður,“ sagði leikkonan Charlize Theron einu sinni.
Söngkonan og X-faktor dómarinn Cheryl prumpaði einu sinni í X-Faktor þættinum þegar hún var að gefa keppanda ummæli.