Georg verður hringaberi

Georg prins.
Georg prins. mbl

Systkinin Georg prins og Karlotta prinsessa munu gegna mikilvægu hlutverki í brúðkaupi Pippu Middlet­on og unn­usta henn­ar, James Matt­hews, 20. maí. Georg verður hringaberi og Karlotta brúðarmær.

Pippa er systir Katrínar hertogaynju sem er gift Vilhjálmi prinsi. 

Karlotta verður nýorðin tveggja ára gömul en hún mun ganga inn kirkjugólfið með Middleton í St. Marks-kirkj­unni í Englefield.

Karlotta prinsessa.
Karlotta prinsessa. mbl

Georg verður fjögurra ára gamall í júlí en hann hefur giftingarhringana í sinni vörslu áður en þeir verða settir upp.

„Pippa Middleton og James Matthews tilkynna með ánægju að brúðkaupið þeirra fer fram í St. Marks-kirkjunni í Englefield að morgni 20. maí,“ sagði talsmaður Kensington-hallar.

„Aðeins fjölskylda og nánustu vinir verða viðstaddir athöfnina, þar á meðal Katrín hertogaynja og Vilhjálmur prins og Harry prins. Georg verður hringaberi og Karlotta brúðarmær,“ sagði talsmaðurinn ennfremur.

Pippa Middleton er yfir sig sæl þessa dagana.
Pippa Middleton er yfir sig sæl þessa dagana. mbl

Yfirlýsingin bendir til þess að Katrín verði ekki brúðarmær. Pippa Middleton var brúðarmær í brúðkaupi Vilhjálms og Katrínar fyrir sex árum. Þar vakti hún mikla athygli í hvítum hjól og fyrir líflega framkomu.

Brúðkaupsveislan fer fram á heimili foreldra Middleton.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú veist ekki hversu miklu þú kemur í verk ef þú bara hefst handa. Þú hefur aldrei farið troðnar slóðir og ættir ekkert að vera að byrja á því núna.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú veist ekki hversu miklu þú kemur í verk ef þú bara hefst handa. Þú hefur aldrei farið troðnar slóðir og ættir ekkert að vera að byrja á því núna.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson