Stórleikarinn Al Pacino og kærasta hans hin 38 ára gamla Lucila Sola skemmtu sér á strönd í Mexíkó á dögunum og fögnuðu 77 ára afmæli stórleikarans.
Daily Mail greinir frá því að skötuhjúin hafi hagað sér eins og ástfangnir unglingar þrátt fyrir 39 ára aldursmuninn. Á meðan Sola spókaði sig um í efnislitlu bikiníi lét Pacino það nægja að vera á stuttermabol og í hnébuxum, meira að segja úti í sjó.